Sérherbergi & KojugistingMIDGARDBASE CAMPHVOLSVÖLLUR, Iceland
FRÁBÆR AÐSTAÐA OG STAÐSETNING
Heitur pottur og sauna
Midgard Base Camp er bæði hótel og hostel. Þú getur valið á milli sérherbergis (tveggja-manna eða fjölskyldu) eða kojuherbergis. Heildafjöldi rúma er 62 og þau eru öll uppábúin. Aðgangur að sauna og yndislegum heitum potti með frábæru útsýni yfir Eyjafjallajökul er innifalinn í gistingu.
Eftir ævintýri dagsins geta gestir gætt sér á góðri máltíð á veitingastaðnum okkar Midgard Restaurant. Eins er tilvalið að slappa af í notalegum sófum og rólum í stóru sameiginlegu rými. Önnur aðstaða sem vert er að nefna: þvottavél, þurrkuskápur, útiverönd þar sem gott er að slaka á yfir sumartímann, háhraða internettenging í allri byggingunni og nóg af bílastæðum.
>> Kynntu þér nánar aðstöðuna hjá Midgard Base Camp
Staðsetning Midgard er fullkomin fyrir gesti sem vilja upplifa alla þá fallegu staði sem vert er að skoða á Suðurlandi. Andrúmsloftið er afslappað og vinalegt. Midgard fjölskyldan tekur brosandi á móti gestum og er alltaf reiðubúin að aðstoða við ferðaplön og gefa ráðleggingar.
Hvernig gistingu viltu?
Sérherbergi eða kojuherbergi…
Hér fyrir neðan getur þú séð nánari lýsingu á gistimöguleikum.
Lestu þér nánar til um herbergin okkar hér fyrir neðan. Lýsingin er á ensku en hægt að breyta verðinu yfir í íslenskar krónur. Hafir þú einhverjar spurningar eða vantar aðstoð við að bóka getur þú haft samband hér, sent okkur póst á sleep@midgard.is eða heyrt í okkur í síma 578 3180.